16.7.2008 | 22:25
Tíkin Hekla Panda tekur að sér kettlinginn Tuma Tæger Djóns
Hér kemur smá saga af tíkinni Heklu Pöndu, sem að er löghlíðin tík og býr í Eldstó Café á Hvolsvelli. Hún hefur hingað til átt miður góða reynslu af köttunum í þorpinu, sem að eiga það til að stökkva út úr eitthverju limgerðinu og ráðast á hana með kjafti og klóm, þar sem að hún er í sakleysi sínu á gangi með eiganda sínum.
Hekla Panda hefur aldrei átt hvolpa, enda ung að árum, verður 3ja ára 15.nóv. næstkomandi. Hún vill vera allra vinur og elskar bæði önnur dýr og menn. Myndi sjálfsagt falla á varðhundsprófinu, hvað varðar það að fæla burtu ræningja, enda segir hún að það sé ljótt að fara í mann-og dýrgreinarálit.
En Hekla Panda hefur nú allveg splúnkunýtt hlutverk, hún er nefnilega orðin mamma, án þess að hafa komið nálægt öðrum hundi og átt við hann mök. Afkvæmið er að vísu ekki eingetið og ekki var það glasafrjóvgun, en engu síður er þetta staðreynd. Hekla Panda hefur nefninnilega tekið að sér kettlinginn hann Tuma Tæger Djóns, en hann er víst frændi hans Indíana Djóns, með blóð eldhuga í æðum.
Að vísu er Tumi Tæger Djóns ekki nema 2ja og hálfs mánaða, en honum finnst hann sjálfur vera mjög kúl. En hann er stundum svolítið þreyttur og lítill í sér og þá fær hann að sjúga stóran og góðan spena hjá henni Heklu Pöndu mömmu, sem þvær honum vel og rækilega bak við eyrum og á öðrum óæðri stöðum sem að ekki verða nefndir hér.
Hekla Panda fær 10+ í einkunn fyrir umhyggju og elsku til Tuma síns og lætur sig engu varða hvernig reynsla hennar af öðrum köttum er. Hann Tumi Tæger Djóns er sko fullkominn í hennar augum.
Það er svo notalegt að fá sér að drekka af spena, verst hvað hún mamma er alltaf að þvo mér.
umm ...
hvað þetta er gott og yndislega róandi !
Það er svo gott að vera hjá henni mömmu !
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vefurinn | Breytt 8.12.2015 kl. 13:03 | Facebook
Athugasemdir
Rosalega er þetta krúttlegt.
Sigrún Óskars, 16.7.2008 kl. 22:50
Yndisleg færsla
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 10:21
Helga mín, en hvað þetta er falleg færsla og full af kærleika. Og þau "mæðgin" eru svo flott og cool flott nafn Tumi Tiger Jones heheheeh....
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 11:47
Dásamlegt og mikið er hann Tumi Tæger Djóns líkur henni Pöllu minni sem dó af slysförum í fyrrasumar.
Vilborg Traustadóttir, 18.7.2008 kl. 00:09
Sæl og blessuð Helga mín.
Þú hefur aðeins mátt vera að því að líta uppúr öllum verkunum og komið með skemmtilega bloggfærslu.
Alltaf skemmtilegt að sjá dýr af ólíkum tegundum verða vinir eins og Hekla Panda og Tumi Tæger Djóns.
Guð veri með þér og þínum.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.7.2008 kl. 23:18
Já, en það er ekki oft sem að ég kemst í tölvuna, alltaf á hlaupum. Lífið er samt gott og takk fyrir að koma við á síðunni minni, Guð blessi ykkur !
G.Helga Ingadóttir, 20.7.2008 kl. 20:48
Flottar myndir! Hundavænir kettir, það er málið. Bestu kveðjur!
Guðrún Markúsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:44
YNDISLEGT með einu orði sagt.
Linda, 25.7.2008 kl. 13:52
sæl Helga. Alveg er það merkilegt hvað dýrin eru yndisleg. Á sjálf 2 hunda og eina kisu, elska dýr. kveðja
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.8.2008 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.